|
|
04.09.2008 15:39:26 / Sveit
í dag fórum við 8. bekkur og 7. bekkur í fjallgöngu yfir Klofnings-heiði .
Mikið af brekkum og grjóti og nokkrir erfiðir kaflar en annars fínt.
Þetta var 4 klukkutíma ganga og allir hlökkuðu til að fá að fara úr skónum.
Stoppuðum 2 til að fá okkur smá bita og héldum svo áfram göngunni.
Gangan endaði á Flateyri þar semvið stoppuðum og fórum í Sund.
Skemmtum okkur vel þar , =) (=
ég ,Alli og Remek fórum í boltaslag sem endaði þegar við fórum uppúr.
Síðan bauð Snorri okkur í pylsu og öl og þegar við kláruðum pylsurnar var lagt á stað .
Á leiðinni heim í rútunni fórum við öll í flöskuslag og skemmtum okkur vel,
svo komum við heim og að ég held eru allir að hvíla fæturna fyrir morgunndaginn =) .    :þ    
»
22.04.2008 13:26:25 / Sveit
Hæ allir ,ég var að koma frá Noregi  ég var í útlöndum fyrir stutta það var fyrsta skiptið mitt og ótrúlega gaman Ég og aldís fórum í heimsókn til Anne sem var ársskiptinemi hjá okkur (við fórum um páskana) Vona að allir hafi skemmt sér um páskana Verð að fara bæjó
»
08.12.2007 20:21:35 / Sveit
Jólahjól Undir jóla hjóla tré er pakki Undir jóla hjóla tré er voðalega stór pakki í silfurpappír og mamma og pabbi glotta í laumi í kampinn
Skild'a vera jólahjól Skild'etta vera jólahjól Skild'a vera jólahjól Skild'etta vera jólahjól
Úti í jólahjólabæ slær klukka úti í jólahjólabæ hringir jólahjólaklukkan jólin inn Ég mæni útum grá glugga og jólasveinninn glottir bakvið ský út í bæði
Skild'a vera jólahjól Skild'etta vera jólahjól Skild'a vera jólahjól Skild'etta vera jólahjól
Mamma og pabbi þegja og vilja ekkert segja
Skild'a vera jólahjól Vona að þetta sé nú jólahjól Að þetta sé nú jólahjól óóóójeeeee
Undir jóla hjóla tré er pakki Undir jóla hjóla tré er voðalega stór pakki í silfurpappír og mamma og pabbi glotta í laumi í kampinn út í bæði.
Skild'a vera jólahjól Skild'etta vera jólahjól Skild'a vera jólahjól Skild'etta vera jólahjól ... skildetta vera hjólajól? ætli það sé mótorhjól?
»
07.12.2007 19:25:24 / Sveit
jejjjj:Litla-Hvít(kýrin mín) var að bera ..Hún eignaðist naut ótrúlega krúttlegt naut =)=)=)=) ooooooohhhhhhh:Minz er veikur og kemst ekki út að sjá ótrúlega sæta nautið mitt..... og hausinn á mér er að springa!!!!! ég óska öllum góðs gengis og vona að enginn fái eins hrikalegan hausverk og ég núna !!!!!
»
13.11.2007 21:59:22 / Sveit
Hæ sorry hvað það er langt síðan ég skrifaði. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér! .
Báðar kýrnar mínar eru kálfullar =) =) =) =) =)
Þær eru báðar fallegar,hvítar og góðar kýr. Önnur þeirra
heitir Sibba hin heitir Litla-Hvít.Ég á 1 kýr 2 kvígur og 1
naut og svo 2 ófædda kálfa.
Á næsta föstudag er ég að fara til rvk í afmæli hjá afa mínum
Ég er að gera myndband/mynd í Húsinu mínu ,á Suðureyri og
þar í kring til að gefa honum því að það er svo langt síðan
hann hefur komið hingað!! .
Ég þarf að fara að halda áfram með handritið ....Ójá ég
skrifa handritið og tek upp myndina/myndbandið  Skrifa meira seinna bæ
»
29.07.2007 22:02:10 / Sveit
Hæj 
Langt síðan ég hef bloggað "/ sorry 
Sæluhelgin var rosalega skemtileg ég var í
sæluhelgarleikritinu,ég lék Borgarstjórann í
Smándaborg,Snyrtifræðing í Gimsteinaborginni og Tjúttara í
Draugaskógi,það var verið að taka upp heimildarmynd fyrir leikritið
og Birna og Rúnar komu heim til mín að taka viðtal við mig.Áður en
ég birjaði í leikritinu var ættarmót hjá mér *Laugamótið* seinasta
daginn var ganga fram í Vatnadal fyrir ofan Bæ,ég, Bjössi og Aldís
vorum í keppni hvert okkar væri fyrst að bílnum,það var stutt eftir
bara ein brött brekka og ég hljóp niður og ég datt beint í
oggoponsolítinn læk þetta var *GG* sárt!! .Eftir svona hálfan mánuð
ewftir slysið sem var ekkert svo stórt þá birjaði ég að sjá og
finna mun á hnánum,Mér var líka svo illt þegar ég var að æfa ,þegar
æfingin var að enda gat ég valla gengið mér var svo illt ,Ég fékk
far hjá Þresti(ljóninu) heim, Það var verið að halda upp á afmælið
hans pabba og ég mætti þegar það var að verða búið ,ég settist í
sófan og ætlaði að fara að fá mér að borða en þá byrjaði þáttur sem
að mér finnst skemmtilegur sem heitir Dagrenning,eftir stutta stund
bað ég Aldísi að rétta mér teppi svo annað en þótt ég væri með2
teppi skalf ég ég var mæld og ég var allt í einu kominn með 39,4
stiga hita og hnéð á mér var skoðað og Fanný stóra systir mín bar á
mig joð og sagði að hnéið á mér væri bólgið 
Stuttu seinna var ég komin í skoðun á sjúkrahúsinu þegar læknir var
búinn að skoða mig ákvað hann að ég skildi vera áfram á
sjúkrahúsinu !
Ég var lögð inn og fékk tvo lítra af vökva í æð og fullt af litlum
sýklalyfspokum !
Ég var þrjá daga á sjúkrahúsinu og fékk sýklalyf í æð á 6.
klukkutíma fresti. Þegar ég var á sjúkrahæusinu var ég vakin
klukkan 6 og var tekin úr mér blóðprufa,það sem mér líkaði best við
á sjúkrahúsinu var maturinn(en ég var lystalaus ,)og sjónvarpið(
því heima er ég bara með stöð1.en á þessum 3 dögum komu Birna og
Rúnar(leikstjórarnir) að heimsækja mig og gáfu mér kerti 
En síðustu daga hefur Sunna verið hér og um daginn fórum að rúlla ú
14. tíma ;O 
Síðan kom líka Kristrún :* og hún gisti í tvo daga með okkur í
tjaldi 
Já ég og Sunna erum búnar að gista í tjaldi í viku sem hefur verið
æði 
En annars höfum við verið mikið að vinna í því að gefa kálfum og
lömbum ;D !
Og við vorum að gefa um daginn og fundum dauðan heimaling í
girðingunni "/ sem hét Annabell og var yngst og
pínlulítil
Í dag fann Bjössi einn unga sem var móðurlaus þá fór ég,Sunna og
Aldís út að leita að mömmunni og eftir góða stund fann mamma hana í
hænsnarkofanum með átta stikki unga plús þennan sem Bjössi fann
Nú eru þeir úti í garði með mömmu sinni í búri.En ekki meira í bili

--Hófí ;*
»
07.05.2007 21:21:12 / Sveit
Lansbankahlaupið
5.maí.2007.
Kl.9.
vaknaði ég fékk mér morgunnmat og fór svo á Ísafjörð með mömmu.
Kl.11. fór ég í landsbankahlaupið það var *GG* gaman. Þegar búið
var að hlaupa fengu allir vatnsbrúsa, verðlaunapening og jójó,
síðan var boðið upp á pylsur, topp og svala
J. Og
svo þegar það var allt búið kom pabbi að sækja mig og við fórum
heim, og svo fór ég bara beinustu leið út í fjósið . Síðan
auðvitað kom ég inn borðaði og horfði síðan á mynd með
Aldísí.
»
08.04.2007 21:20:45 / Sveit
Hæ
sorry hvað það er langt síðan ég
skrifaði
Hæ hvað
seigja allir? Ég var á rokkhátíð alþýðunnar í gær
og Fyrradag,
það var rosalega gaman *GG’ lög og góð
stemmingJ
….
Fékk
eiginhandaráritanir í bókina mina (era ð safna
sko)Skal
seigja ykkur hvað ég fékk í gær : Bloodgroup,Benni
sig,Mugison,
Doktor spook, Lay Low og Hljómsveit sem eru í
:Lóa Hlin
Hjálmtýrsdóttir,Árni Plóserinn, Árni vil
.Ekki
meira í bili og GLEÐILEGA
PÁSKA!JJ
JJJ
»
08.04.2007 21:05:43 / Sveit
Tónleikar
Á
Suðureyri voru fyrir nokkru
síðan.Miðsvetrar-Páskatónleikar í
Bjarnaborg, ég spilaði 5 lög : Menúet ,
kvölsigling,Ísland
er land þitt, e einhvað,all the rage.Ég er
kominn í páskafríJejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj.
Vona að ykkur líði jafn vel og mér Gleðilega
PÁSKA
»
30.03.2007 00:02:54 / Sveit
Fimmtudagurinn.Mars.Árshátíðin.
Ég fór í skólann klukkan 10.00 kom heim
klukkan 12.00 það var lokaundirbúningur
fyrir árshátíðina um kvöldið.Við áttum að
mæta kl.17.00 og kl. 19.29. og sýningarnar
voru klukkan 17.30 og 20.00. Eftir seinni
sýninguna var diskótek til 23.30 var ekkert
skemmtilegt diskótek ,bara lélegt. Og svo
fór ég heim skrifaði þetta og fór svo að
sofa.
Góða nótt sofið vel.
»
23.03.2007 22:14:08 / Sveit
»
22.03.2007 22:47:33 / Sveit
»
19.03.2007 13:28:23 / Sveit
Hæ hvað seigja
allir?
Ég seigji bara allt
gott
Er í skólanum
Jói er að kenna
okkur
erum í
tölfum
vona að öllum líði
vel
kv.Hófí
bæbæ
»
26.02.2007 16:58:37 / Sveit
»
Síður: 1 2
|
|